kjallararottan bloggar !

hvurt ?!

21.01.2008 01:39:31 / björk

ný síða

hey,, komin með nyja síðu, nýtt blogg,,
her yfirgef ég blog.central og er farin yfir í bloggar.is ..

hér er hún, www.bjorkk.bloggar.is

allir þangað!

 -björk kristjáns


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 23:17:57 / björk

" minns vill leika við þinns "

jæjajæja,, ákvað nú að láta heyra í mér, nú þegar ég er stungin af í stórborgina..
en af mér er allt gott að frétta, er búin að koma mér fyrir í litlu sætu íbúðinni hjá stelpunum á hringbraut 113!
við ösp sofum saman í stóra rauða herberginu hennar og í stóóra geeðveika hjónarúmminu!

fyrsti vinnudagurinn á Hagaborg var á mánudaginn, var að fá magasár af stressi! en svo gékk þetta bara vel!
byrjaði á yngstu deildinni, litlir bleyjurassar sprettandi útum allt, segja manni svakalegar sögur og eina sem maður segir er " er það ! jii! þú segir ekki ! " án þess að vita glóru af því sem krakkinn er að reyna að segja ! 
 

svo í gær og í dag var eg í elstu deildinni ,, sem var mun öðruvísi, allt annað líf..
þau kunna sko að segja manni spennandi sögur og maður skilur allt sem þau segja, eða svona,,,  mest allt!
er vá hvað maður er búin á því eftir daginn, þvílíkt sem þetta tekur á mann!
er komin með sma hálsbólgu, því að ég er með svo litla auma rödd, tala nú ekki hátt, en núna þarf maður alltaf að tala hátt og beita röddinni meira !
börnin stara bara á mig þegar ég er að skamma þau, hugsa örugglega bara "thh hey ! hvað er þessi stelpa að skamma mig! hvað þykist hún eiginlega vera"

en þetta er rosa gaman og sé strax hvað ég hef breyst eftir að hafa byrjað þarna!.. yndisleg börn og starfsmenn :)
og svo labba ég úr og í vinnuna svo maður verður bara orðin helviti fitt eftir þetta!

en nóg um vinnuna,, ég fór til Írisar minnar í gær, elduðum okkur , nei,, hún eldaði handa okkur samloku með spældu eggi ! hehe
höfðum það kósí í stóru íbúðinni hennar sem er reyndar ekki langt frá okkar íbúð ! sem er baara magnað !! maður labbar þetta bara ;)

svo í kvöld var "módelkvöld" ( next topmodel ) í fjólugötu hjá erni og tinnu , við systur og kata fórum og borðuðum mexican pönnukökur og horfðum á vittlausar grenjandi anorexiusjúklinga sem einhverjir dómarar eru búnir að heilaþvo!   en þvílikar tussur sem þær geta stundum verið þessar blessuður stelpur... samt alltaf gaman að flylgjast með þessu og hlægja! bandaríkjamenn! uss !

en jæja ég nenni eigi að blogga hér,, er svo lúinn eftir daginn..
hlakka til að vakna á morgun og hitta litlu börnin mín..

góða nótt!

og ,, látið heyra í ykkur ef þið saknið mín!

-björk leikskólakennari

" hendur undir borð og ekki segja aukatekið orð ! "


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 01:56:46 / björk

" það er hún fröken Reykjavik "

jæja kæru lesendur,, þá er komið að því ,, stelpan komin með vinnu í borg óttans!
byrja á mánudaginn í leikskóla, Hagaborg, hlakka mikið til,
ösp vinnur þarna lika og mín elsku mágkona ooog tobba frænka også!
svo þetta verður bara gaman!..
er samt pínu hrædd við börn, kann ekki neitt á þau, en þetta er þá eitthvað þroskandi og á bara eftir að gera mér gott : )

en jæja, í fyrradag fórum við guðrún til Akureyrar til Helgu , gistum þar og höfðum að notarlegt,, pantað góða pizzu og svona eins og vanarlega hehe,,
svo í gær þá fóru stelpurnar í vinnu og skóla, á meðan ég svaf út eins og ég er búin að gera síðasta mánuðinn!
svo kom guðrún heim úr skólanum og við bara skelltum á okkur svuntur og þrifum íbúðina hennar helgu hátt og lágt!!
það var bara tekin jólahreingerninguna á ný!
við vorum eins og leiðinlegu skessurnar í " Allt í drasli " nema við vorum ekki með bleika loðna gúmmíhanska og auðvitað vorum við miklu  skemmtilegri ! hehe 
 en ánægð var hún helga litla þegar hun kom í glansandi íbúðina sína!

gott að eiga góða að eins og okkur Guðrúnu ; )

 en jæja, svo leið á kvöldið og við fengum okkur að eta,, við guðrun fengum okkur góðar tikktakk brauðstangir ! beeeest
svo fór maður að taka sig aðeins til og byrja að fá sér í glas,, ég var auðvitað með hvítvínið mitt góða, alltaf jafn Pen ,,
svo komu fullt af fólki i smá teiti heima í fínu fínu íbúðinni hennar helgu!!
Jón geir frændi hennar Guðrúnar kom meðalannars sem kom með okkur á ball, Páll óskar í ka heimilinu,,, þar var dansað mikið ,, svo þegar maður var að verða eðlilegur á ný þá var ekkert gaman, allir eitthvað minni en maður sjálfur og svona rugl , hah

svo við guðrún og jóngeir fórum niðrí bæ og skelltum okkur á Amor, eða jóngeir fór heim, og þar hittum við stöllur strákana, þóri, Jón Geir ( frá hauganesi ! ) , sigga braga og elmar,, helvíti gott stuð á þeim, svo þegar við vorum búin að vera einhvern tíma þar , færðum við okkur yfir á Kaffi Akureyri , og þar var dansað allt vit, maður var orðin vitlaus aftur og dansað af sér fæturnar, bókstaflega..!

svo endaði kvöldið í Tikk Takk og fengið sér góða brauðstangir , aftur, og rúllað heim og beint í tjarnarkjallarann góða þar sem ég rotaðist með kisunum mínum þrem!


en núna er maður búin að pakka niður hálft herbergið ofaní töskur og tilbúin að rjúka hér út og heilsa uppá stórborgina með stóru spékopps brosi !: )

nú segi ég góða nótt  kære venner,, heyrumst í Reykjavík !

godnat  


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 02:52:18 / björk

árið mitt !

ég ætla að skifa niður punkta sem eru á ársplaninu mínu eins og stendur,, sumsé hvað ég ætla að gera í mínu lífi árið 2008!

 

  • Byrja með því að vinna, hvar sem þar verður,, ætla kannski suður til Aspar sös og vinna í borginni í einhverja þrjá mánuði
  • koma svo aftur hingað í mars eða svo, og byrja að vinna í húsasmiðjunni á Dalvík, ef að verður í boði.
  • Svo þegar MA er komin í sumarfrí, þá ætlum við stelpurnar vonandi að fara saman í gelgjuferð til heitulandanna!! djúsað rækilega þar!
  • kem svo aftur heim og vinn til svona lok júní, því þá ætlum við systur að fara til Danmerkur í svona byrjun júlí eða lok júní, og fara á hróaskeldu og sjá Radiohead, þar sem þeir spila lög úr snilldar plötunni sinni " in Rainbows" !!!!!!!!
  • svo verðum við systur í danaveldi allveg restina af sumrinu
  • svo loks í ágúst kemur Indiana mín til danmörku og við tvær förum í skólann okkar, líðháskólinn " Ryslinge Höjskole " þar sem við munum dvelja þar á heimavist allt árið !!!
  • komum auðvitað heim í jólafrí, höldum jól og áramót hjemme på dalvik, eða í sveitinni góðu,
  • förum svo aftur út í januar09 og klárum skólann
  • komum svo heim aftur að sumri 2009,, og farið að vinna á ný,, einhverstaðar, það er ekki enn planað hvar,, 
  • en svo er planið að klára bara vma, en það er enn óljóst!! kanski maður fari bara suður í skóla,, en þetta kemur í ljós

jah, þar hafiði það ! þetta er samt bara svona plön, kannski bætist eitthvað meira við eða eitthvað breytist !
en ji hvað þetta verður spennandi,, og mikil peninga eyðsla,, en maður á ju að njóta lífsíns og gera allt sem manni langar til að gera, og ekki láta neitt stoppa sig í þvi, 
ég meina, maður lifir jú bara einu sinni !!

djúpt?..

en gerið svona plön fyrir ykkur, rosa gott fyrir mann, lætur manni líða vel! 
Do iit !

Lag augnarbliksins : Tracy Chapman - Give me one reason

ofur svalt lag!

en jæja góðir gestir,, þetta eru síðustu orðin í kvöld,, vona að þið hafið notið þess að lesa þau,, skrifumst síðar!

góða nótt kæru lesendur,,,, hverjir sem þeir nú eru

takkfyrirmig

 

- björk hin draumóða

 

rock it baby, rock it

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 02:05:34 / björk

nú árið er liðið í aldanna skaut... og aldrei það kemur til baka ..

" gleðilegt nýtt ár, þakka fyrir það gamla, megi árið 2008 vera jafn gott og 2007, jafnvel betra.. "

jæja, nú er nýtt ár gengið í garð,, enn einusinni,, hvering ætli það verði nú ?,, nýir tímar, nýjar stundir, ný ævintýri , ný leiðindi, ný gleði, ný erfiði, ný hamingja og bara nýtt líf?..

tja meigi tímin gefa allt í ljós,,

nú er einmitt ár síðan ég byrjaði aftur með þessa síðu,, fögnum því..

en jæja,, áramótin voru , áágæt, góður matur, sammt alltof mikil drykkja,, hefði mátt vera aðeins minna af henni..

en kvöldið byrjaði bara eins og flest gamlárskvöld,
við byrjuðum á þvi að kíkja til ömmu og afa á Dalbæ og skáluðum með þeim í sherry eða hvenig sem maður skrifar það,, svo var farið heim og borðað góðan mat,, borðaði yyfir mig ,, úff..
svo var farið að gera sig fína fyrir kvöldið, eða nóttina, og byrjað að drekka, horft síðan á skaupið ,,
já skaupið! hvenig fannst ykkur ??
mér persónulega fannst það áágætt,, brosti svona stundum,, en annars hef ég lítið gaman af svona íslensku gríni,, nema næturvaktin og fóstbræður sleppur..

jæja,, við systur vorum heima til svona tvö, vorum fyrst hérna heima með Erni og Tinnu, svo náði erla í okkur systur, fórum til kötu og þóris, en stoppuðum þar í svona tvær min, svo var okkur keyrt á barinn,, og þar var maður bara allt kvöldið, eins og flestir..

þannig var nóttin í grófum dráttum , ágæt, en hefði verið skárra ef maður hefði róað sig aðeins í drykkjunni.. úff.. tókst að detta í stiganum þarna úti á barnum, og fékk þar með sár á hnéið,, keemur á óvart!

svo var endað í eftirpartýi hjá Gumma pálma,, sungið mikið og spilað á gítar og tommur,, bongotrommur?.

endaði síðan kvöldið með að skríða uppí til indiönu elskunni minni , og rotaðist þar.. klukkan svona átta..?

jæja nóg komið af rugli ..

ætla að lúra,, góða nótt og farið vel með ykkur á nýju ári...

áramótaheit; " ætla að fara vel með mig bæði líkamlega og andlega,, og hafa gaman af lífinu og ekki láta neitt  eða   neinn   breyta því .. "

býsna gott?

 

-björk


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 23:26:56 / björk

jól jól jól !

Gleðilega hátíð allir, þakka fyrir mig ! sjáumst svo öll blindfull og vitlaus á áramótunum !

heiheihei!!

nokkrar myndir sem voru teknar á aðfangadagsnótt í tjarnarkjallaranum góða !

 

 

 

 

fleyri skemmtilegar myndir af okkur frænkunum í góðu flippi á www.myspace.com/bjorkk ! : )

 

 

 

Glædelig jul !


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 03:06:16 / björk

jólin nálgast!.. og fylgir því gott og þægilegt lag

Between the bars - Elliot Smith 

drink up, baby, stay up all night
the things you could do, you won't but you might
the potential you'll be, that you'll never see
the promises you'll only make

drink up with me now and forget all about the pressure of days
do what I say and I'll make you okay and drive them away
the images stuck in your head

people you've been before that you don't want around anymore
that push and shove and won't bend to your will
I'll keep them still

drink up, baby, look at the stars
I'll kiss you again between the bars where I'm seeing you
there with your hands in the air, waiting to finally be caught

drink up one more time and I'll make you mine
keep you apart deep in my heart separate from the rest
where I like you the best and keep the things you forgot

the people you've been before that you don't want around anymore
that push and shove and won't bend to your will
I'll keep them still

 

Björk


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 03:52:38 / björk

03:50

elska lyktina af kaffi,,, en djöfull er það vont á bragðið!

.. en reyndar er það áágætt ef maður bætir svona þrem sykurmolum í,, kannski þessvegna sem ég er ennþá á fótum,, eftir tvo kaffi bolla með mikið magn af sykri!!

måske !  skal vi have kaffe ja?!

 

-björk eldstjána


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 18:03:52 / björk

konfekt meistarinn

jæjja gott fólk, nú er akkúrat ein vika og einn dagur til jóla! hvaað þetta er búið að líða hratt ,, allveg ótrúlegt !
það er komin smá jólafílingur í mann, en samt ekki nóg,, er einhvernvegin ekki að ná því að það sé að koma jól..!
ég er reyndar samt geðveikt spennt útí áramótin,! get varla beðið! Áramótar fötin komin uppá herðartré, og bíða spennt eftir að vera með í frábæru djúsi á Dalvíkinni ! 
haldiði ekki að stúlkan ég hafi saumað á mig kjól og leggings ! djöfull dugleg!

en annars er ekki margt að frétta, ég er jú komin í jólafrí, og er ekki að vinna, svo ég er bara að njóta þess að vera í fríi!
það gékk ágætlega í prófum, náði flesstu.. en ekki þó öllu!

Ösp systir er Looks komin heim, svo gott að fá hana.. efast um að ég sleppi henni þegar hun fer aftur suður.. ætli ég færi ekki bara með henni ! hehe

Örn bróðir og Tinna elsku mágkona koma svo annan í jólum, er ég held! get ekki beðið eftir að fá þau!

oh ég elska jólin ! klárlega besti tími ársins!

en jæja ég nenni eigi að blogga hér, er öörlítið tymbruð eftir smá tjútt með mögnuðum Dalvíkurdruslum á dalvíkinni ! þvílikt stuð með þessum stúlkum : )

en jæja best að fara gera sig huggulega fyrir styrktartónleikana sem eru hér á eftir,, ætla ekki mæta svona tussuleg eins og ég er núna!

en allir að mæta á tónleikana og sjá alla þessa tónlistar snillinga [ m.a. systu og múttu !!;) ], og einnig flottu tussurnar í sjoppunni ! hehe ; )

blessykkur og Gleðileg jólin

-björk marsipan fíkill


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 20:34:17 / björk

jóla jóla jóla frí !!

kæru landsmenn, Ég, Björk Kristjánsdóttir, er komin í jólafrí! jább lífið í ljúft,, líífið er ljúft  !

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 20:45:29 / björk

góður húmor!

 

 

 

  • Einu sinni voru tvö sandkorn útí eyðimörkinni. Þá sagði annað við hitt: Ég held við séum umkringd!

 

 

ahhahaha!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 17:05:53 / björk

been dazed and confused for so long it's not true..

sáuði tunglið í gær?! það var einhvernvegin svona!
allveg magnað!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 22:50:20 / björk

einmanna kjallararotta!

Tvær Stjörnur 

Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hver hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.

Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn,
svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn.
Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð
og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð.

Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin
Því ég sé það fyrst á rykinu, hve langur tími er liðin.
Og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli.
Því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli.

Já, og andlitið þitt málað. Hve ég man það alltaf skýrt,
auglínur og bleikar varir, brosið svo hýrt.
Jú ég veit vel, að ókeypis er allt það sem er best,
En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.

Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér.
Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á.
En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá.

Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær.
Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund.
En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund.
 

-björk

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 22:43:38 / björk

þrjátíu dagar nætur!

eg fór í bíó í gær með guðrúnu, binnu og strákunum á hryllingsmynd 30 days of night,, og ég fór að velta því fyrir mér. hversu Geðveikur þarf maður að vera til að geta gert svona mynd!?!
í allvöru talað ! það hefur klárlega einhver maður sem er gjörsamlega veikur á geði gert þessa mynd..
so sick sick sick .

ég var búin að lofa sjálfri mér eftir að ég flutti niður í kjallara, að horfa aaldrei aftur á hryllingsmynd,, bara svona til að gera sálinni minni gott, því að ég er með svo aagarlegt ímyndunarafl, að lítill krakki gæti ekki toppað það! líka útaf því að ég bý í 100 ara gömlu húsi, með gömlu fjósi, og kirkju + kirkjugarð, og kjallarinn er með svona sjö hurðir sem eru lokaðar og það er smátt óhugnarlegt.. en jæja

 jújú, ég fór samt á þessa mynd, ákvað að skella mér bara.. en vitiði, ég hefði allveg mátt sleppa því, ég held að það verður ekki sofið i kjallaranum á Tjörn næstu mánuðina..

reyndar er ég núna í herberginu, sjáum til hvort ég skottast upp í íbúð í nótt..

 en allavega,, þa er ósköp lítið hægt að segja hér.
það styttist í próf, og skólinn fer bráðum að ljúka,, og vinna tekur við , hvar sem hún verður.. er orðin svo fátæk að það verða engar jólagjafir frá mér í ár.. kannski rett bara handa familiunni, föndra eitthvað.. annars verður bara gefin ást og umhyggja fra mér þessi jól  : )

veðrið er allveg í ruglinu, snjór, rok, rigning, til skiptist..
ætli það verði rauð jól í ár?!

tjah máske

nóg í bili

-björk stjána


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 00:05:45 / björk

good hairday

þið eruð ekkert að spauga með þetta veðurfar?!,, rólegi snjórinn sem kom bara alltí einu ! það er bara varla bílfært hérna!,,
ég keyrði þó frá akureyri til dalvíkur, lagði af stað klukkan svona tíu til að getað komið á rettum tíma í klippingu klukkan hálf tólf! jább, gott færi var það ekki í morgun!
en það var samt heppilegt fyrir mig að það var búin að moka, guðsélof! var litl kvíðna að fara keyra þetta, er langt frá því að vera vön að keyra í svona rugli!.
en ég lifði þetta af!
mjöög sætt samt að keyra á dalvík, maður er bara að skauta þarna á veginum, allavega á þeim götum sem er ekki búið að moka ! eins og td karlsbrautin! fór áðan að ná í hleðslutæki til indiönu, klikkað að keyra þar! var bara á fullu að snúa blessað stýrið! haha 
een svona er þetta, veturinn er víst gengin í garð krakkar minir!

en allavegana þá er ég sumsé ný klippt og lituð, er næstum með svart hár! jább það er mjöög dökkt! en eg fíla þetta : ) alltaf jafn gaman að vera ný klippt!

 en þaað var bekkjarpartý um helgina, hittingu hjá 90' árgangnum drykkfelda! hehe 
við stelpurnar byrjuðum að vera heima hjá kristjáni, þar sem drengurinn var einn heima, tókum okkur til og sumir fengu sér í glas, neema björkin! var helvette dugleg og var bara að keyra fyrir skvísurnar á bláa beyglaða pólóinum hennar elínar!
svo var haldið á ytri vík, Það þarf sko að fara skoða þennan veg sem er þarna!! það er bara lífshætta að keyra þarna! var hrædd um að við myndum bara fara framm af og parkera bílnum ofan á bústaðnu, !  hrææðilegur vegur!!
allavega.. þá var þetta ágætt partý, fórum samt snemma á dalvík aftur, við indiana dvöldum heima hjá kristjáni, í hans herbergi meðan hann og elin voru í hjónaherberginu.. skondið

svo var bara tekið því rólega restin af helginni, það verður gert það sama þessa helgina, ætla bara að loka mig inni og kúra uppí sófa með heitt kakó að horfa á Family guy eða eiitthvað slíkt!
þoli ekki þennan snjó! er ekki tilbúin í þetta allveg strax! það má allveg bíða bara frammí desember að snjóa, eða það á allavega að vera snjór á aðfangadag, mér er sama um hitt : ) 

en jæja komið nóg hérna, best að fara lulla, skóli á morgun! oh!.. á meðan bölvuðu MA buddurnar eru í Vetrarfríi þangað til á mánudag eða eitthvað rugl! djösdjös!!
langar bara að leggjast í dvala núna yfir veturinn og kuldan, vakna svo þegar sumarið er að byrja á ný.. vakna bara svona á milli þegar jólin og áramótin eru .. halda svo áfram að vera í dvala og svo er bara komið sumar og sól þegar eg vakna aftur! mhm það væri nú býsna ljúft ha!.. en jæja ég er byrjuð að dreyma hérna! Góða nótt!

spennið beltin og farið varlega krakkar mínir !

 

-björk stjána

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan